|
Heimasíða Vals og Helgu Velkomin á heimasíðuna okkar! |
|
|
Við heitum Valur og Helga
Valur fæddist á fæðingardeild Landspítalans þann 27. september 2005 klukkan 8.15 um morguninn. Hann lét aðeins bíða eftir sér því hann átti að koma í heiminn viku fyrr eða 20. september. En honum fannst sniðugra að bíða í viku og koma á afmælisdeginum hennar ömmu. Fæðingin gekk mjög vel, mamma og pabbi voru komin upp á spítala rétt fyrir miðnætti og hann mætti á svæðið um morguninn. Hann var 3.655 grömm, 14,5 merkur og 51 sentimetri. Helga fæddist á fæðingardeild Landspítalans þann 9. nóvember 2009 klukkan 19.57. Þetta var gangsetning sem fór mjög rólega af stað og gekk í alla staði vel. Fæðingin gekk rosalega vel, aðeins 3 tímar, og Helga fæddist í vatni. Hún var 3.540 grömm, 14 merkur og 50 sentimetrar. Valur og Helga eiga hundinn Krúsa sem kom í heiminn 8. september 2008. Krúsi er Cavalier King Charles Spaniel hundur. Ekki gleyma að kvitta í gestabókina! Flettingar í dag: 3 Gestir í dag: 2 Flettingar í gær: 7 Gestir í gær: 3 Samtals flettingar: 47628 Samtals gestir: 18738 Tölur uppfærðar: 21.3.2010 10:21:35 |
Vafraðu um |